| Í töflunni hér að neðan má sjá samantekt á þeim þjónustum og samskiptastöðlum sem Netfreyjurnar bjóða upp á. | | |
| Nettengingar
Þrátt fyrir að Netfreyjan séu öflug heildarlausn sem hentar við flestar aðstæður þar sem gerð er krafa um öryggi og stöðuleika við rekstur tölvukerfis þá takmarkast gæði þjónustunnar að einhverju leiti við þá Internettengingu sem er á hverjum stað. Leigutaki ber ábyrgð á því að Internet tenging sé virk og að hraði tengingar sé í samræmi við þá þjónustu sem Netfreyjan á að sinna. Í mörgum tilfellum verður leigutaki jafnframt að tryggja sér fasta IP-tölu fyrir Internettengingu sína en það er auðsótt í samráði við þann Internetþjónustuaðila sem leigutaki á í viðskiptum við. Rétt er þó að taka fram að í flestum tilvikum duga þær Internettenginar sem nú þegar eru hjá leigutökum svo ekki þarf að koma til aukins kostnaðar vegna þessa.
Jafnframt eru allar innanhúss nettengingar, rafmagnslagnir og aðstaða fyrir Netfreyju á ábyrgð leigutaka. Leigutaka ber að finna Netfreyju stað þar sem hún verður ekki fyrir hnjaski í hreinlegu læstu rými. |
| Notendur
Fjöldi notenda skiptir máli þegar Netfreyja er pöntuð enda ákvarðast afl vélbúnaðarins sem Netfreyjan keyrir á meðal annars af notendafjölda. Þegar talað er um notendur í þessu samhengi er gott að vita að hver notandi fær sitt heimasvæði og tölvupósthólf (Póst- og Gagnafreyja). Einnig er átt við samtímanotendur sem táknar að ekki er hægt að panta Skjalafreyju fyrir einn notanda sem margir notendur ætla sér svo að nota á sama tíma. Gert er ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika í fjölda notenda enda starfsmannafjöldi fyrirtækja oft breytilegur. Ef stórvægileg breyting verður hinsvegar á notendafjölda á leigutímabilinu getur komið til þess að endurskoða þurfi leigusamning. |
| Full uppsettar Netfreyjur
Skjalafreyja
Áður en við afhendum Skjalafreyju tilbúna til notkunar, höfum við stofnað þá notendur sem leigutaki tilgreindi þegar hann pantaði hjá okkur. Skjalafreyjan kemur uppsett með heimsvæðum fyrir þessa notendur og einu sameignarsvæði. Heimasvæði eru skráasvæði sem einungis einn ákveðinn notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur uppsett með Skjalafreyjunni nýtist öllum notendum og gerir þeim kleyft að skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar sem ákveðinn hópur, tveir eða fleiri notendur, hafa aðgang að. Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli Skjalafreyju inn á algengustu netkerfi. Skjalafreyjan er í flestum tilfellum komin í notkun fáeinum mínútum eftir að hún hefur verið afhent. Tæknimenn okkar geta að sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað.
Póstfreyja
Áður en við afhendum Póstfreyju tilbúna til notkunar höfum við stofnað þá notendur og pósthólf sem leigutaki tilgreindi þegar hann pantaði hjá okkur. Einnig setjum við póstþjóninn upp fyrir það lén sem hann á að sjá um. Leigutaki leggur til Internettengingu með fastri IP-tölu og tryggir að hraði tengingar sé í samræmi við fjölda notenda. Póstfreyjan kemur uppsett með heimsvæðum og pósthólfum fyrir þessa notendur, og einu sameignarsvæði. Heimasvæði eru skráasvæði sem einungis einn ákveðinn notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur upp sett með Póstfreyjunni nýtist öllum notendum og gerir þeim kleyft að skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar sem ákveðinn hópur, tveir eða fleiri notendur hafa aðgang að. Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli Póstfreyju inn á algengustu netkerfi. Tæknimenn okkar geta að sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað.
Gagnafreyja
Áður en við afhendum Gagnafreyju tilbúna til notkunar höfum við stofnað þá notendur og pósthólf sem leigutaki tilgreindi þegar hann pantaði hjá okkur. Jafnframt eru útbúnir sér lyklar fyrir notendur sem gerir þeim kleyft að tengjast Gagnafreyjunni með öruggum hætti í gegnum Internetið hvar sem þeir eru staddir. Póstþjónn er uppsettur fyrir það lén sem leigutaki tilgreinir. Gagnafreyjan kemur uppsett með heimasvæðum og pósthólfum fyrir þessa notendur, og einu sameignarsvæði. Leigutaki leggur til Internettengingu með fastri IP-tölu og tryggir að hraði tengingar sé í samræmi við þann fjölda notenda sem um ræðir. Heimasvæði eru skráasvæði sem einungis einn ákveðinn notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur uppsett með Gagnafreyjunni nýtist öllum notendum og gerir þeim kleyft að skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar sem ákveðinn hópur, tveir eða fleiri notendur, hafa aðgang að. Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli Gagnafreyju inn á algengustu netkerfi. Tæknimenn okkar geta að sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað. |
| Afritun
Í boði eru tvær tegundir af afritunum, innanhúss og utanhúss. Að taka innanhúss afrit er góð leið til þess að eiga afrit af nýjustu skjölum sé þeim eytt í ógáti, eða þau tapast með öðrum hætti. Innanhúss afrit tekur skamman tíma og er því mögulegt að taka afrit með fárra klukkustunda millibili. Utanhúss afrit eru eins og nafnið gefur til kynna, afrit sem flutt eru úr húsi. Afrit sem er geymt annarsstaðar en upphaflegu gögnin er mikilvægara en innahúss afrit þar sem þá er tryggt að gögnin séu ávallt til taks, þó svo að eitthvert óhapp eigi sér stað, svo sem eldsvoði eða innbrot. Utanhúss afrit eru flutt úr húsi með aðstoð Internetsins í gegnum dulkóðuð göng. Einungis þær breytingar sem hafa átt sér stað frá síðasta afriti eru fluttar í gagnasafn á okkar netþjónum. Með þessum hætti er hægt að eiga fullkomið afrit af stórum skráasöfnum ef eitthvað ber út af. Fjöldi afrita sem eru flutt úr húsi með þessum hætti takmarkast af hraða Internettengingar leigutaka. Í flestum tilvikum þarf ekki að auka hraða tengingarinnar en leigutaka ber að leggja til nettengingar í samræmi við fjölda utanhússafrita sem um er samið. |
|
|